19. febrúar 2008
VIP boð hjá KIA 21/2 kl 18-20 fyrir meðlimi L2C
Fimmtudaginn. 21/2 frá kl. 18-20 ætlar Hekla að hafa VIP boð í stórglæsilegum sýningarsal KIA að Laugavegi 172 og frumsýna nýjan bíl frá KIA - KIA pro_cee'd og meðlimum Live2Cruize er boðið að mæta á staðinn.
Meðlimum er boðið að gæða sér á veitingum frá Quiznos og fá sér gos með. PS3 tölvur á staðnum með nýjustu bílaleikjunum eins og "Burn Out Paradise" og möguleiki á fríum bíómiða í Smárabíó.
Bíllinn er ríkulega búinn staðalbúnaði, er stílhreinn og sportlegur, er með 7 ára ábyrgð, frábæra aksturseiginleika og flotta hönnun. Bíllinn er framleiddur í verksmiðju KIA í Zilina.
Verð pro_cee'd
1,6 EX dísil, beinsk. 115 hö - 2.190.000. -
1,6 EX bensín, sjálfsk. 122 hö. - 2.190.000. -
Vonumst til að sem flestir nýti sér þetta tækifæri
25. janúar 2008
Ýmsar myndir
Eitthvað vantaði nú inn af samkomumyndum og öðru og er ég búin að uppfæra allt sem vantaði þar. Hægt er að skoða myndirnar hér:
Myndir frá samkomunni 10. janúar 2008
Myndir frá samkomunni 15. nóvember 2007
Myndir frá samkomunni 18. október 2007
Myndir frá samkomunni 27. september 2007
1. desember 2007
Spjallið komið í lag
Eins og einhverjir hafa kannski tekið eftir keyrðum við spjallkerfið okkar aftur upp í gærkvöldi og virðist það haldast stabílt eins og er. Við biðjum þó notendur að láta okkur vita ef þeir eru að lenda í einhverjum frekari vandræðum :)
29. nóvember 2007
Update með spjallið
Eins og staðan er núna erum við komin með utanaðkomandi mann í málið sem er að vinna í því að athuga hvað er hægt að gera til að koma spjallinu aftur upp í fyrra horf. Þess vegna tókum við spjallið offline svo það myndi ekki trufla hans vinnu að menn væru endalaust að setja álag á gagnagrunninn. Hann er búin að vera að vinna í þessu í allt kvöld og mun halda áfram á morgun þannig vonandi fer að koma einhver botn í þetta mál sama hvað gerist.
28. nóvember 2007
Vesen með að pósta á spjallið
Einhverjir notendur eru að lenda í því að ekkert gengur að pósta á spjallinu og er þetta vandamál hjá hýsingaraðila sem verið er að vinna í. Þetta lýsir sér þannig að fólk fær upp Database error villu um að pósturinn þeirra hafi ekki farið í gegn og oftar en ekki birtist topiccið en ekkert inn í því.
Við biðjum notendur okkar að sýna þolinmæði þar sem verið er að vinna í þessum málum og vonum við að lausn finnist sem fyrst.
10. nóvember 2007
L2C á nýju spjallkerfi
Jæja þá kom loksins að því að við keyptum okkur spjallkerfi til að keyra spjallsvæðið okkar. Þetta kerfi býður bæði upp á betri vinnslu fyrir notendur og stjórnendur og vonum við að notendur og meðlimir okkar verði ánægðir með þessa uppfærslu.
Spjallið er því komið á nýja slóð þ.e. http://www.live2cruize.com/spjall/index.php
Við erum enn að vinna í smá böggum út frá uppfærslunni en flestir þeirra ættu að vera komnir í lag sem betur fer :) Ef þið eruð að lenda í einhverju veseni ekki hika við að hafa samband við okkur á live2cruize@centrum.is
Viltu lesa tilkynninguna - SMELLTU HÉR
9. nóvember 2007
Spjallið - Update
Uppfærslan er búin að taka núna lengri tíma en gert var ráð fyrir. Sjáum við fram á að koma spjallinu ekki í loftið almennilega fyrir seinnipartinn í dag eða þegar líða fer á kvöldið. Við þökkum sýnda þolinmæði.
8. nóvember 2007
Spjallið niðri
Vegna uppfærslna verður spjallsvæðið tekið niður upp úr miðnætti í kvöld og mun þessi uppfærsla að öllum líkindum standa yfir þangað til í fyrramálið eða vonandi í versta falli þangað til annað kvöld. Ef eitthvað breytist munum við pósta tilkynningu hér með nýjustu upplýsingum.
23. september 2007
Uppfærslur á ljósmyndum
Eitthvað átti ég eftir að uppfæra hérna á forsíðu að nýjar myndir væru komnar inn.
Myndir frá Bíladögum á Akureyri 2007 - Samkoman okkar
Myndir frá samkomunni 5. júlí
Myndir frá samkomunni 30.ágúst
24. júní 2007
Formúla 1 á Íslandi
Formula 1 ökumaðurinn Nico Rosberg ekur fullbúnum Williams 2007 keppnisbíl við Smáralind 26. júní næstkomandi. Smellið á myndina hér fyrir neðan til að skoða dagskránna.
25. maí 2007
Uppfærslur á ljósmyndum
Eitthvað átti ég eftir að uppfæra hérna á forsíðu að nýjar myndir væru komnar inn.
Myndir frá Trackday í Keflavík 28. apríl
Myndir frá samkomunni 3. maí
Myndir frá samkomunni 5. apríl
Myndir frá samkomunni 15. mars
Myndir frá samkomunni 22. febrúar
15. apríl 2007
Bíladella 2007
Coke Zero, Kvartmíluklúbburinn og Bílabúð Benna halda bílasýningu. Sýningin verður haldin í Chevrolet salnum að Tangarhöfða 8-12 dagana 19-22. apríl næstkomandi og verður hún opin sem hér segir:
Fimmtudaginn 19. apríl frá 11:00 til 20:00
Föstudaginn 20. apríl frá 13:00 til 22:00
Laugardaginn 21. apríl frá 11:00 til 22:00
Sunnudaginn 22. apríl frá 11:00 til 16:00
Öll flottustu tryllitæki landsins á einum stað sem enginn má missa af. Miðaverð er 1200 kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Smellið á myndina til að fá hana stærri:

31. janúar 2007
Samkoma
Myndir frá samkomunni 11. janúar eru komnar inn - Skoða nánar hér
30. janúar 2007
Samkomumyndir
Myndir frá tveimur samkomum sem voru fyrir jól
Myndir frá samkomunni sem var 5. október 2006
Myndir frá samkomunni sem var 23. nóvember 2006
31. október 2006
Undirskriftarlisti gegn víravegriðum til ráðherra samgöngumála, Sturlu Böðvarssonar
Bifhjólafólk og aðrir velunnarar bifhjóla!!! Tökum okkur saman og mótmælum þeirri vá sem samgönguráðuneytið ætlar að hella yfir okkur með stóraukinni notkun Víravegriða. Hvetjum alla til að mótmæla í verki og skrifa undir. Undirskriftalistinn verður svo afhentur Samgönguráðherra með formlegum hætti í byrjun Desember. Láum í okkur heyra. Umferðaröryggi er ekki einkamál bifreiða.
Sjá nánar á síðu Sniglanna http://www.sniglar.is/read_news.php?news=793
Undirskriftarlistin er hér: http://www.sniglar.is/protest
27. september 2006
Fullt af uppfærslum - Samkomumyndir
Eitthvað hafa nú uppfærslur á síðunni gengið hægt fyrir sig en ég tók mér tak og uppfærði hrúgur af ljósmyndum sem átti eftir að uppfæra. Endilega kíkið nánar og skoðið myndir frá samkomum.
Myndir frá samkomunni sem var 14. september 2006
Myndir frá samkomunni sem var 24. ágúst 2006
Myndir frá samkomunni sem var 27. júlí 2006
Myndir frá samkomunni sem var 6. júlí 2006
Einnig skellti Palli sér í tvær myndatökur síðustu vikur og má sjá afraksturinn hér:
MMC EVO í eigu Guðjóns
Subaru Impreza GT í eigu Óla
3. ágúst 2006
Miami Vice í boði Bílabúðar Benna
Það verður sérstök Bílabúð Benna forsýning á MIAMI VICE þriðjudaginn 8 ágúst kl 8! Þeir sem koma Í verslunina hjá okkur og versla fyrir 3,900,- eða meira fá tvo miða á þessa sýningu!
Auk þess viljum við líka bjóða þeim sem eiga flotta bíla að setja á þá TOYO TIRES límmiða og stilla upp fyrir utan bíóið og fá þá tvo frímiða á sýninguna!
Þeir sem vilja sýna bíla verða að koma við í Bílabúð Benna og sýna okkur bílinn á þriðjudag eftir hádegi, til að fá miðana.
|