MYND MÁNAÐARINS

MYNDIN Í STÆRRI UPPLAUSN

 
 
 

 

 

 
 
SUBARU IMPREZA SAGAN
     
 

Nóvember 1992

Subaru Impreza kemur fyrst á markað í Japan

1993

Imprezan kemur fyrst á markað í Bretlandi. Til að byrja með var aðeins í boði 5 dyra útgáfan, en svo kom 4 dyra. Fjór- og framhjóladrifnu vélarnar sem boðið var upp á voru 1.6, 1.8 og 2.0

1994

Turbo bíllinn kemur á markað í Bretlandi og nokkrir bílar er fluttir til Íslands

Júní 1995

Fyrsta breska sérútgáfan kemur út í Bretlandi. Sú týpa hét McRae og var aðeins fáanleg í djúp bláum lit á 16" Speedline Safari álfelgum með Recaro innréttingum og sóllúgu. Aðeins 200 bílar voru framleiddir til að fagna því að Colin McRae vann WRC titilinn fyrir Subaru.

Október 1995

Subaru hættir að framleiða framhjóladrifnar Imprezur og hættir með 1.6 og 1.8 lítra vélarnar.



Október 1996

Imprezan fær útlisbreytingu og fær vígalegri framenda og framljós. Húddinu er breytt og einnig er báðum húddristunum breytt. Breytingar á vél minnka túrbínulaggið og auka torkið með því að nota minni túrbínu. Krafturinn er samt sem áður sá sami.



Fyrsti 2 dyra STi-inn kom á markaðinn í fyrsta skipti með 294 mm bremsudiskum og 4 potta bremsum.



Apríl 1997

Önnur sérútgáfa kemur á markað. Sú heitir Catalunya og var hún bara fáanlegí svörtu á gylltum felgum, með svartri og rauðri inréttingu og A/C sem staðalbúnað. Aðeins 200 bílar voru framleiddir og voru þeir framleiddir til að fagna sigri í Catalunyu rallinu ásamt WRC heimsmeistartittlinum 1996.

Október 1997

Breytingar verða á inréttingu þar sem notað er Forester mælaborð, Momo stýri og 2 loftpúðar. Takkar og hurðaspjöld breytast en litlar breytingar á útliti fyrir utan að álfelgurnar voru stækkaðar í 16".

Sett var miðstærð af vindskeið á Japanska STi bílinn (version 4).

Apríl 1998

Þriðja sérútgáfan kemur á markað. Henni var gefið nafnið Terzo og var aðeins hægt að fá hana í Sonic bláum á gylltum álfelgum, með Alcantara sætum og A/C sem staðalbúnað. Aðeins voru framleidd 333 stykki til að fagna sigri í þriðja sinn í WRC heimsmeistarakeppninni.



Á sama tíma í Japan, var framleidd eftirlíking af WRC Imprezunni, sem var 2 dyra coupe með 2.2 Turbo vél og fékk hann nafnið 22B. Hann var aðeins framleiddur í Sonic Bláum og var á 17"gylltum BBS felgum á 235/40 dekkjum, með hárri hreyfanlegri vindskeið, öðrum framenda og öðrum húddristum. Aðeins 400 stykki voru framleidd og voru þau framleiddi aðeins fyrir Japansmarkað til að fagna 40 ára afmæli Subaru.

Október 1998

Framendinn breytist og verður svona meira í líkingu við 22B framendann og vindskeiðin er stækkuð að aftan. Krafturinn jókst úr 208 bhp í 211 bhp og bremsurnar uppfærðar í líkingu við þær sem eru á STi útgáfunni.



Apríl 1999

Fjórða sérútgáfan af bílnum er sett á markað. Hún fékk nafnið RB5 og var aðeins hægt að fá hana í Blue Steel Metalic lit, á dökk gráum Speedline 17" álfelgum, Alcantara sætum og A/C sem staðalbúnað. Aðeins voru framleiddir 444 bílar til að fagna því að Richard Burns gekk til liðs við Subaru WRC liðið. RB5 var einnig hægt að fá sem RB5-WR með hárri Prodrive vindskeið og Performance Pakka.




Október 1999

Breyting á innréttingu, ásamt nýjum 16" álfegum, og samlitun á speglum og hurðarföngum.



P1 tilkynnti á London Motorshow að það ætti að flytja inn 1000 stykki af 278 bhp, 2 dyra bílum. Þeir myndu uppfylla alla Evrópu staðla og myndu aðeins verða fáanlegir í Sonic bláum með fjöðrun og útlitsbreytingum frá Prodrive.

Einnig kom út í Japan STi (útgáfa 6) með hárri vindskeið og nýjum álfelgum.



Maí 2000

Sérútgáfa af 2.0 lítra sportúgáfunni sem kom aðeins í Canary gulum eða Mica svörtum með samstæðri innréttingu og útlitsbreytingum í stíl við turbó útgáfuna af bílnum.



September 2000

Nýja útlitið kemur fyrst á markaðí Japan (New Age Imprezan)

Október 2000

Nýja Imprezan kemur út allstaðar í heiminum. Þrjú módel eru kynnt í Bretlandi - WRX 2.0 lítra túrbo, GX 2.0 lítra og TS 1.6 lítra. Bæði WRX-inn og Gx-inn fást í 4 og 5 dyra útgáfum, en Ts-inn aðeins í 5 dyra útgáfu.

Japanski WRX STi-inn sést í fyrsta skipti í Japan.

Febrúar 2001

Bæði Bandaríkin og Kanada fá í fyrsta skipti WRX og er hann gefin út sem MY2002.



Maí 2001

Fyrsta breska sérútgáfan af nýju Imprezunni er kynnt. UK300 bíllinn er aðeins til í Rally Blue Metalic litnum og kemur á 18" álfelgum, með fram og aftur vindskeiðar frá Prodrive, ný framljós og Alcantara í innréttingum sem staðalbúnað. Aðeins 300 bílar voru framleiddir. Hægt var að fá sem aukapakka í UK300 bílinn, svokallaðan Prodrive performance pakka fyrir MY2001.



September 2001

Evrópsk útgáfa af STi bílnum er tilkynnt á bílasýningunni í Frankfurt ásamt nýjum útlitsbreytingum frá Prodrive. Í Japan kemur tilkynning um MY2002 WRX-inn, STi 8 bíllinn og Prodrive útlitsbreytingarnar og að þær verði aðeins frábrugðnar evrópsku útgáfunni.



Maí 2002

Í Japan koma á markað nokkrar sérútgáfur til að fagna 30 ára afmæli þeirra. Meðal þeirra eru S202 sem var fyrsta Imprezan sem að fór yfir 280 bhp múrinn. Einnig var gefin út STi með 384N-m torki, sem er meira heldur en 22B er með.

Júlí 2002

Subaru í Bretlandi gefure út sérútgáfu af 2.0 lítra GX bílnum, sem er með Morrette tvískiptum ljósum og hárri vindskeið sem staðalbúnað.



September 2002

Imprezan fær enn eina útlitsbreytinguna sem var sýnd í fyrsta skipti á Paris Motorshow. Bíllinn fékk algjörlega nýjan framenda og hin svokölluðu Bug Eye framljós voru látin hverfa. Að aftan urðu ljósin í anda Lexus ljósanna og á STi bílnum kemur há vindskeið sem staðalbúnaður.

Janúar 2003

Gefin er út 2.5 lítra Impreza WRX STií Bandaríkjunum með 4 cylindra boxer vél með AVCS. Vélin er 300 bhp @ 6000rpm og 300 lb-ft tork @ 4000rpm.

Viljir þú vita meira um Imprezuna þá ættir þú að fjárfesta í mynd sem heitir Subaru Impreza Story smelltu á nafnið til að skoða meira um þessa mynd.

Algengar spurningar :




Hvað stendur STi fyrir ?

SUBARU TECNICA INTERNATIONAL var stofnað í Apríl 1988 af Fuji Heavy Industries, sem er framleiðandi Subaru. Takmarkið var að reyna að auglýsa framleiðslu Subaru um allan heim í gegnum mótorsportið og STi samsamaði sig að alþjóðlegu rallýi.



Hvað er Fuji Heavy Industries ?

Upprunalega var Fuji þekkt sem Nakajima Aircraft fyrir seinni heimstyrjöldina og bjó til mikið af orustuvélum. Jafnvel hin fræga Mitsubishi Zero orustuvél var með Nakajima 14 cylindra mótor. Eftir stríðið varð fyrirtækið að skipta sér upp í 15 minni fyrirtæki til að minnka afl sitt á vopnamarkaðinum. En í byrjun 5 áratugarins tóku 5 af þessum fyrirtækjum sig saman í eitt fyrirtæki til að sérhæfa sig í fólksflutningum. Það fyrirtæki er þekkt sem Fuji í dag og þess vegna eru 5 litlar stjörnur og 1 stór í lógói þeirra.



Hvað stendur Subaru merkið fyrir ?

Subaru var ekki skýrt eftir stofnanda fyrirtækisins eins og kannski mörg önnur fyrirtæki sbr Henry Ford og Michio Suzuki. Subaru er japanskt orð sem þýðir "7 systur" sem er samnefni yfir þær 7 stjörnur sem sjást hvað mest í Pleiades stjörnuklasanum. En merkið þýðir samt sem áður uppbygging fyrirtækisins, þ.e. fyrirtækið varð eitt úr sameiningu 5 lítilla fyrirtæka þ.a.l. 5 litlar stjörnur og 1 stór.



Hvað er Prodrive ?

Prodrive var stofnað af David Richards og Ian Parry. Prodrive er í raun aukahlutafyrirtæki sem sérhæfir sig í allskonar tækni fyrir einstaklinga, fyrirtæki, keppnislið og fleira. Prodrive er þekkt fyrir mikil gæði en eru langt frá því að vera ódýrir.



Afhverju kemur STi bíllinn fyrst til Evrópu árið 2002 ?

Ástæðan er sú að STi í Japan hefur ekki mátt flytja þá til Evrópu og annarra landa utan Japan vegna samninga milli Japan og annarra dreifiaðila.

Hvernig hefur það þá verið hægt að flytja t.d STi bílana til Bretlands ?

Bílarnir hafa verið fluttir inn notaðir sem Grey Import.

Subaru Impreza GT MY00 - Hvað stendur þetta MY00 fyrir ?

Þetta MY00 er notað af Subaru eigendum til að tilgreina það ár sem bíllinn kom á götuna, þannig að MY00 væri bíll sem kæmi á götuna árið 2000. MY stendur þannig fyrir Model Year.

Hvað þýðir nafnið 22B ?

Mönnum þótti lengi vel mikil ráðgáta hvernig nafnið 22B væri tilkomið. Menn voru sammála um að 22 skírskotaði til slagrýmis vélarinn en hún er 2.2 lítra. B-ið olli mönnum hinsvegar talsverðum hausverk. Mörgum datt Boxer í hug sem skírskotaði þá til boxervélanna sem Subaru er þekkt fyrir en ýmsir bílablaðamenn töldu víst að B-ið stæði fyrir Bilstein sem sá að mestu leyti um hönnun á fjöðrunarkerfi bílsins.

Fyrir þá sem ekki vita enn í dag hvað nafnið þýðir þá verður hulunni af leyndardómnum hér með svipt af.

Ræsið vasatölvuna sem kemur með Windows.

Smellið á view og veljið Scientific.

Smellið því næst á Hex sem er efst vinstra megin á vasatölvunni.

Sláið svo 22B inn

Smellið því næst á Dec sem er staðsett við hliðina á Hex takkanum

Þá ætti svarið að standa í glugganum á vasatölvunni :)

Ég er ekki 100% viss með þetta, þetta gæti verið tilviljun að þetta komi svona út, en samt!!!

Sent inn af Óttari Erni

Sölutölur yfir Subaru Impreza Turbo á Íslandi frá 1996 - 2003

4-dyra GT bílar : 77 stk Mynd MY00
4-dyra WRX bílar : 9 stk Mynd MY01
4-dyra STi bílar : 3 stk Mynd MY01 Mynd MY03
5 dyra GT bílar + WRX : 14 stk Mynd MY00

Ef þú hefur einhverjar spurningar, stórar sem smáar, sem að þig langar að fá svarað í sambandi við Imprezuna eða hefur einhverjar upplýsingar sem að þér finnst vanta hérna inná, endilega sendu okkur töluvpóst á live2cruize@live2cruize.com og við munum bæta því við.

 

 
     

 
DAGATAL

Hér mun koma dagatal sem inniheldur allar helstu upp-
lýsingar um hvað er að gerast
hjá klúbbnum.

 

AUGLÝSINGAR

Ef þú hefur áhuga á að kaupa auglýsingu sendu póst á live2cruize@live2cruize.com

 
 
 

© www.Live2Cruize.com - Allur réttur áskilinn - Netfang: live2cruize@live2cruize.com