MYND MÁNAÐARINS

MYNDIN Í STÆRRI UPPLAUSN

 
 
 

 

 

 
 
SUBARU IMPREZA ÁBYRGÐARSAMNINGUR
     
 

Ábyrgðarsamningur tekin upp úr Ábyrgðar- og þjónustubók

1. Skilmálar
Ingvar Helgason hf. Seljandi , ábyrgist bifreið þá sem ábyrgðarsamningur þessi hljóðar á samkvæmt skilmálum þeim sem greindir eru hér að neðan. Veigamikill hluti bifreiðarinnar er í 3ja ára ábyrgð með kílómetrahámarki og vísast í þriðja kafla um það atriði. Aðrir hlutar hennar eru í 12 mánaða ábyrgð utan þeirra hluta sem tilgreindir eru sérstaklega í kafla 4 hérna að neðan.
Komi up galli í bifreið þessari er kaupanda hennar vinsamlegast bent á að hafa tafarlaust samband við viðurkennda þjónustuaðila. Bent skal á að dráttur og/eða notkun af hendi kaupanda eftir að galli kemur fram getur í vissum tilfellum margfaldað upprunalegt tjón. Dráttur á að tilkynna galla veldur takmörkun eða niðurfellingu ábyrgðar. Jafnframt er það starfsmönnum Ingvars Helgasonar hf. keppikefli að bifreið þessi sé í fullkomnu lagi og að kaupandi hennar sé ánægður með ástand hennar.

2. Heils árs ábyrgð
Ábyrgðin á bifreið þessari er tvískipt. Heilsársábyrgð er á allri bifreiðinni með litlum undantekningum. Sjá kafla 4. Segja má að þriggja ára ábyrgð með kílmómetrahámarki sé á þeim hluta bifreiðarinnar sem getur reynst hvað dýrast að gera við komi til galla.

3. Þriggja ára ábyrgð
Þriggja ára ábyrgð með 100.000 km hámarki, hvort heldur kemur fyrr, tekur til allra neðangreindra hluta.
1. Vél: Strokklok og vélarblokk og allir innri hlutir, ventlalok og olíupanna, ventlar og fylgihlutir þeirra, tímalok, olíudæla, vatnsdæla, eldsneytisdæla soggrein og útblástursgrein, túrbína og svinghjól, pakkdósir og pakkningar.
2. Gírkassi: Gírkassi og allir innri hlutir, kúplingshús (ekki kúplingsdiskur og pressa), millikassi og allir innri hlutir, pakkdósir og pakkningar
3. Drif: Drifsköft og drifhús, allir innri hlutir, legur, pakkdósir og pakkningar.

4. Það sem ekki er í ábyrgð, hvorki heils árs né þriggja ára.
4.1 Ábyrgðin nær ekki til hjólbarða, slangna, pera, öryggja, viftureima, kveikjuhluta og hvarfakúts (catalysator)
4.2 Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits

5. Skyldur kaupanda og takmarkanir á ábyrgð seljanda.
5.1 Til þess að viðhalda ábyrgð bifreiðarinnar (heils árs eða þriggja ára) er kaupanda skylt að færa hana reglulega til þjónustueftirlitis. Brýnt er að allt eftirlit, einnig smureftirlit, sé framkvæmt af viðurkenndum þjónustuaðila. Seljandi hafnar bótum ef þessu atriði er ekki fullnægt.
5.2 Ábyrgðin er háð því skilyrði að varahlutir notaðir í bifreiðina séu allir framleiddir fyrir þessa bifreið af framleiðanda hennar
5.3 Kaupanda er skylt að sjá um flutning bifreiðarinnar að og frá viðgerðarstað
5.4 Reynist nauðsynlegt vegna fjarlægðar eða ófærðar að gera við bifreið utan þjónustukerfis Ingvars Helgasonar hf skal haft samband við seljanda og leita eftir samþykki hans. Ella verður tjónið ekki bætt. Seljandi greiðir einungis samkvæmt dagvinnutaxta þjónustuaðila sinna í Reykjavík.
5.5 Ábyrgðin nær ekki til tjónabíla (samkvæmt skilgreiningu reglugerðar um gerð og búnað ökutækja), né heldur megi rekja galla til tjóns eða árekstrar. Ábyrgðin nær ekki til tjóns sem orsakast af utanaðkomandi hlutum (svo sem steinkasti eða annarra efna)
5.6 Afnotamissir bifreiðar vegna ábyrgðarviðgerðar fæst ekki bættur. Ábyrgð bifreiðar lengist sem afnotamissi nemur.
5.7 Sé bifreiðin notuð á óeðlilegan eða ólögmætan hátt, hún misnotuð, fellur ábyrgðin úr gildi. Sömuleiðis ef bifreiðin sem ekki má aka utan vega er ekið á þann hátt.
5.8 Óbeint tjón sem rekja má til galla fellur ekki undir ábyrgð þess
5.9 Rétt er að brýna enn einu sinni fyrir kaupanda að tilkynna tafarlaust um uppkominn galla til viðurkennds þjónustuaðila eða þjónustustjóra Ingvars Helgasonar hf. Einnig að nota ekki bifreiðina nema að höfðu samráði við þjónustuaðila.

 

Allt sem er inná þessarri síðu er í eigu Ingvars Helgasonar hf.
Allur textinn hér fyrir ofan er tekin beint úr þjónustubók þeirra sem fylgdi GT Imprezunum og hefur þeim texta ekki verið breytt að neinu leiti. Copyright á þennan texta er alfarið Ingvars Helgasonar hf.

Ef þú hefur einhverjar spurningar, stórar sem smáar, sem að þig langar að fá svarað í sambandi við Imprezuna eða hefur einhverjar upplýsingar sem að þér finnst vanta hérna inná, endilega sendu okkur töluvpóst á live2cruize@live2cruize.com og við munum bæta því við.

 

 
     

 
DAGATAL

Hér mun koma dagatal sem inniheldur allar helstu upp-
lýsingar um hvað er að gerast
hjá klúbbnum.

 

AUGLÝSINGAR

Ef þú hefur áhuga á að kaupa auglýsingu sendu póst á live2cruize@live2cruize.com

 
 
 

© www.Live2Cruize.com - Allur réttur áskilinn - Netfang: live2cruize@live2cruize.com