TILKYNNING

Kæru notendur,

Okkur er það sönn ánægja að kynna algjörlega nýtt spjallsvæði Live2Cruize. Höfum við ákveðið að skipta algjörlega um spjallkerfi sem keyrt er á vefnum. Aðal ástæðan fyrir þessu er sú að gamla spjallkerfið stóð engan vegin undan fjölda notanda og pósta og því er þetta partur af alherjar uppfærslum sem verið er að gera þessa dagana.

NÝJA SLÓÐIN Á SPJALLIÐ MUN FRAMVEGIS VERA http://www.live2cruize.com/spjall/index.php

Búið er að eyða núna sólahring í að setja þetta kerfi upp og villuleita það, en að sjálfsögðu má alltaf búast við einhverjum smá villum eða böggum svona fyrst um sinn, þannig við biðjum notendur um að vera þolinmóða og hafa þá frekar samband við okkur á live2cruize@centrum.is eða í gegnum PM á spjallinu til Dezzice eða Scooby til að láta okkur vita af villunum.

Þetta kerfi ætti að þjóna notendum okkar mun betur en gamla kerfið, enda býður það upp á mun fleiri fídusa. Helstu nýju fídusarnir sem kannski er vert að tala um eru eftirfarandi:

Bannkerfið á spjallinu er orðið mjög öflugt. Nú er þetta algjörlega undir ykkur komið hvort þið lendið í banni eða ekki ;). Hvert brot á spjallinu hefur ákveðin stigafjölda. Við x mikin stigafjölda fer fólk ósjálfrátt í bann á spjallinu í fyrirfram ákveðin tíma og borðið sér svo sjálft um að hleypa fólki úr banni þegar tímanum er lokið. Við viðvaranir fá notendur ætíð svör frá stjórnendum um afhverju umrædd viðvörun var gefin.

Tilkynningarhnappur er nú komin á hvern þráð og hvern póst. Hann lítur svona út Report

Nú geta notendur ýtt á þennan hnapp og sent inn kvörtun til allra moddana í einu útaf einhverjum ákveðnum pósti eða þræði.

Reputation kerfi er komið í gang á spjallinu og lítur sá hnappur svona út: Reputation
Þetta kerfi býður notendum upp á að gefa öðrum notendum stig hér á spjallinu. Þessi stig eru í formi lítilla grænna kassa sem birtast við notandanafn ákveðins notanda. Við viljum þó benda mönnum á að þetta er ekki ætlað til þess að menn geti spammað hérna grúppíurnar sínar með stigum og hafa menn takmörkuð stig á dag til að gefa. Einnig getið þið ekki gefið einni manneskju öll stigin ykkar á hverjum degi. Ef við sjáum fram á óþarfa misnotkun á þessu kerfi verður það tekið út.

Borðið lætur ykkur nú vita ef avatars eru of stórir og leyfir ykkur ekki að setja þá inn. Við bjóðum þó upp á það núna að menn geta uplódað avatars og ætti það vonandi að hjálpa aðeins til við þessi mál.

Menn geta einnig uplódað prófíl mynd sem er mynd af ykkur sjálfum og gildir það sama yfir það að borðið lætur ykkur vita ef stærðin er of stór.

Einnig bjóðum við nú upp á að menn geti hengt skjöl eða myndir við póstana sína. Þar gilda sömu reglur og fyrir avatarana að einungis er hægt að setja inn skjöl innan ákveðinna stærðarmarka.

Prófíllinn hjá mönnum býður nú upp á mun fleiri möguleika á að setja inn upplýsingar. Ég setti upp á grínið nýjan flokk til að lista bíltegund, týpu og árgerð en langar að heyra í notendum um hvað ykkur fyndist gaman að sjá í prófílnum hjá fólki.

Referral kerfi er komið upp þannig ef vinur ykkar eða einhver sem þið þekkið skráir sig að þá geta þeir sett nikkið ykkar í svokallaðan Referral reit. Það birtist svo í prófílnum ykkar hversu margir hafa komið á spjallið út frá ykkar referrals.

Nú er einnig komið limit á þau PM sem þið getið haft og verðið þið að hreinsa upp PM möppuna ykkar því annars kemur bara að hún sé full og aðrir geta ekki sent ykkur nein PM.

Dagatalið er nýtt á spjallinu líka. Hægt að finna það undir „Calendar“ þarna efst. Þarna verður hægt að setja inn allskonar uppákomur með upplýsingum og öðru þannig meðlimir ættu alltaf að geta fylgst með öllu því nýjasta sem er að gerast.

Nú ef það er einhver notandi sem ykkur líkar ekki við að þá getið þið sett hann á svokallaðan „Ignore“ lista hjá ykkur. Það er þó auðvelt að breyta því tilbaka ef menn vilja svo skoða þá pósta. Ekki er hægt að setja admina og modda á ignore lista.

Buddy List – Hérna getið þið sett inn notendur sem þið hafið gaman af því að spjalla við og eru í ykkar vinahóp.

Þetta ætti að vera svona yfirlit yfir helstu breytingar en ef það eru einhver vafaatriði að þá ekki hika við að hafa samband við okkur :)

Kveðja,

Villý og Palli
http://www.live2cruize.com