L2C
  • Klúbburinn RSS Feed


    Live2Cruize klúbburinn var stofnaður þann 2. febrúar 2001 af Vilhelmínu Evu og Steven Páli. Klúbburinn var stofnaður af þeirri einföldu ástæðu að okkur fannst vanta meiri samheldni hjá bílaáhugamönnum.

    Ákveðið var að stofna nokkurs konar spjallgrúppu þar sem fólk gæti komið saman, talað um bíla og allt sem tengist þeim, skipts á skoðunum, fá góð ráð o.s.frv. Auðvitað var eitthvað til af klúbbum fyrir en okkur fannst vanta eitthvað fyrir þennan almenna bílaáhugamann sem endilega aðhylltist ekki eitthvað eitt framleiðsluland eða tegund.

    Til að byrja með var notast við Yahoo groups en í dag er spjallið inn á síðunni sjálfri á spjallborðinu. Allir geta sótt um þar og tekið þátt í spjallinu með okkur hinum.

    Yahoo grúppann er enn til í dag en er aðallega til að halda utan um skráða meðlimi klúbbsins.

    Í dag er spjallið eitt af virkari spjallborðum fyrir bílaáhugamenn og gaman að sjá hversu mikið klúbburinn hefur stækkað frá því hann fór fyrst af stað 2001. Þetta getum við aðeins þakkað þeim stóra hóp fólks sem hefur verið tilbúið að leggja fram mikla vinnu við að halda þessu batteríi gangandi í gegnum árin. Stjórn klúbbsins á mikið þakklæti skilið fyrir alla sjálfboðavinnuna, án þeirra væri þetta hauslaus her.

    Það er von okkar að klúbburinn eigi aðeins eftir að stækka og blómastra á komandi árum og bjóðum við öllum þeim sem hafa áhuga á bílum og öllu sem tengist þeim að taka þátt í þessu með okkur.

    Þeir sem hafa áhuga á því að vera skráðir meðlimir geta sent tölvupóst á live2cruize(hjá)live2cruize.com og við svörum við fyrsta tækifæri. Það sem þarf að koma fram er nafn, aldur og smá upplýsingar um bílinn sem þú átt.

    Palli og Villý
    Eigendur Live2Cruize klúbbsins og
    www.Live2Cruize.com

  • Stjórnendur

    Eigendur vefsins:

    Vilhelmína Eva
    villy(hjá)centrum.is
    Nafn á spjalli: Dezzice

    Steven Páll
    steven(hjá)centrum.is
    Nafn á spjalli: Scooby
     
    Stjórn klúbbsins

    Magnús
    Nafn á spjalli: Kjallin

    Árdís
    Nafn á spjalli: SheDevil

    Ef þú vilt hafa samband við alla stjórnina sendu tölvupóst á live2cruize(hjá)live2cruize.com