
Shell Bíladagar 2013 – 14.-17. júní á Akureyri
Dagana 14.-17. júní munu fara fram hinir árlegu Bíladagar sem að þessu sinni munu heita Shell Bíladagar 2013.
Dagskráin verður kynnt nánar á heimasíðu Bílaklúbbs Akureyrar www.ba.is og á facebook síðu Bíladaga, en keppnis- og sýningargreinarnar verða sem fyrr:
- Götuspyrna
- Drift
- Auto-X
- Burnout
- Græjukeppni
- Bílasýning
Miðar verða seldir á hvern viðburð en hægt er að kaupa armband á bensínstöðvum Shell í Reykjavík og á Akureyri sem gildir á alla viðburðina. Annars staðar á landinu er einfaldast að kaupa armbönd í gegnum heimasíðuna www.ba.is
Allar aksturskeppnir Shell Bíladaga 2013 munu fara fram á nýju Akstursíþróttasvæði B.A, sem tekið var í notkun á síðast ári að stórum hluta og er staðsett neðst við Hlíðarfjallsveg sem bætir til muna aðstöðu fyrir keppendur og áhorfendur. Tjaldsvæði gesta verða staðsett fyrir gesti Shell Bíladaga á akstursíþróttasvæði B.A
Allar frekari upplýsingar veitir Einar Gunnlaugsson hjá Bílaklúbbi Akureyrar.
Netfang
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og 8626450
Takið dagana frá og góða skemmtun!
Umræður á spjallinu okkar hér!!


Myndirnar frá Burnout 2012 sýningu Kvartmíluklúbbsins eru komnar inn í myndasafnið okkar og á spjallið.
Smelltu hér til að skoða myndasafnið
Smelltu hér til að skoða þráðinn á spjallinu

Myndirnar frá samkomunni 4. október eru komnar inn í myndasafnið okkar.
Smelltu hér til að skoða myndasafnið
Smelltu hér til að skoða þráðinn á spjallinu

Myndirnar frá samkomunni 6. september eru komnar inn í myndasafnið okkar.
Smelltu hér til að skoða myndasafnið
Smelltu hér til að skoða þráðinn á spjallinu

Þú gætir lent í sæti aðstoðarökumanns á sérleið í alþjóðlega Shell V-Power rallýinu sem fram fer 6.-8. september í nágrenni Reykjavíkur.
Allir sem taka eldsneyti á bensínstöðvum Shell fyrir 5. september og fylla út þátttökuseðil komast í pottinn. Tíu heppnir þátttakendur verða dregnir út og fá að sitja í sæti aðstoðarökumanns keppanda í Shell V-Power rallýinu á systu sérleiðinni sem fer fram í Kópavogi 6. september. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.skeljungur.is/VPower
Alþjóðlega Shell V-Power Rallýið á Íslandi 6.-8. september 2012.
Sjá nánar www.rallyreykjavik.net
23 lið eru skráð til leiks, þar af 3 erlend lið.
Hvernig tekur þú þátt?
Til að taka þátt þarf að fylla út umsóknareyðublað með kassakvittun fyrir eldsneyti á næstu Shell stöð fyrir lok dags 5. September.
Haft verður samband við vinningshafana að morgni 6. september 2012.
Hvar og hvenær?
Sérleiðin sem hinir heppnu þátttakendur fá að taka þátt í er, samkvæmt áætlun, ekin í Glaðheimum í Kópavogi kl. 18:30. Vinningshafar eru beðnir um að mæta tímanlega.
Öryggisbúnaður
Sérleiðin er tæpir 2 km sem tekur tæpar 2 mínútur að aka á rallý-bíl, þetta er engu að síður mögnuð reynsla.
Allur öryggisbúnaður verður í boði á staðnum og líkurnar á slysum eru afar litlar.
Megi besti ökumaðurinn vinna!
Smelltu hér til að skoða þráðinn á spjallinu
Smelltu hér til að skoða upplýsingar inn á Shell síðunni
Smelltu á myndina til að stækka hana